Viðauki 10

Meðalaldur kjósenda 1874–1903

Þessi viðauki inniheldur þrjár töflur sem sýna meðalaldur kjósenda eftir kjördæmum. Fyrsta taflan sýnir meðalaldur kjósenda á öllu tímabilinu (1874–1903), skipt eftir því hvort þeir kusu eða kusu ekki. Í seinni tveimur töflunum hefur þessum upplýsingum verið skipt niður á fjögur tímabil sem spanna fimm til átta ár og innan hvers voru ein til þrjár almennar alþingiskosningar auk aukakosninga (árin 1882 og 1896–1898 voru engar kosningar). Hæstu og lægstu tölur á hverju tímabili eru litamerktar (rauðar tölur merkja lægsta gildi en grænar það hæsta). Rauðmerktu eyðurnar í upplýsingum um fjögur kjördæmi skýrast af því að kjörskrár og/eða atkvæðaskrár frá tímabilinu hafa ekki fundist. Einu kjördæmi (Ísafjarðarsýslu) er sleppt vegna skorts á gögnum. Um önnur gögn sem ekki hafa fundist má lesa í athugasemdum undir fyrstu töflu þessa viðauka.

Hlaða niður viðauka 10 (PDF)

Hlaða niður viðauka 10 (Excel)