Þessi vefsíða inniheldur upplýsingar um alþingiskosningar á landshöfðingatímanum (1874–1903). Þá fóru kosningar fram á opnum kjörfundum og menn kusu í heyranda hljóði sinn eða sína frambjóðendur í einmenningskjördæmum eða tvímenningskjördæmum.
Á vefnum er að finna margvíslegar upplýsingar um frambjóðendur og kjósendur á þessum tíma ásamt umfjöllun um framkvæmd kosninga. Leitarbær gagnagrunnur gerir notendum meðal annars kleift að finna einstaka kjósendur og fræðast um hvort þeir kusu og þá hverja eða sjá hvaða kjósendur kusu tiltekna frambjóðendur. Þessi vefur veitir þannig einstaka innsýn í lýðræði og stjórnmálastarf á upphafsskeiði lýðræðisþróunar á Íslandi.

