Uppskrift
níu vandarhögg hvert um sig sem brotlegt verður og sýslumenn skylda heima í sveitum þá refsing á að láta leggja. En kunni þessir menn í annað sinn brotlegir að verða og falla í sömu sök sín á millum eður öðrum persónum jafn nánum þá séu þau sek þrettán mörkum hvert um sig og missi húðina fyrir valdsmanni. Kunni þessir menn í þriðja sinn brotlegir að verða og í sama misferli hafi fyrirgjört fé og friði eftir slíkri miskunn sem kóngur vill gjört hafa sem fyrr segir. Hvervetna þar sem systkinabörn kunna sín á millum brotleg að verða þá séu þau sek hálfri fimmtu mörk refsingarlaust sem fyrr hefur verið og skiljist að upp þaðan. En ef þau verða brotleg í annað sinn gjaldi níu merkur kóngi, hvort sem hún eður hann verða brotleg sín á milli eður við aðra jafnskylda. Verði þau brotleg í þriðja sinn með sama hætti fari bæði útlæg sams árs sem þau fyrst við komast til kóngsins náða án nokkra fégjalda. Ef þeir verða brotlegir sem eru systrungar að frændsemi eður mægðum gjaldi kóngi hálfa fjórðu mörk í fyrsta sinn. Verði þau brotleg í annað sinn gjaldi kóngi sjö merkur. En ef þau hafa ekki fé til hafi refsing tvö vandarhögg fyrir hverja mörk sem ógoldin er að næstum fardögum utan þau fái borgunarmann fyrir sig. Kunni þau í þriðja sinn brotleg að verða sín á milli eður við aðra jafnskylda þá fari strax útlæg út af fjórðunginum í næstu þrjú ár utan sá vilji meiri miskunn á gjöra er kóngsvald hefur í hendi eftir atvikum. Verði þrímenningur brotlegur sín á millum, hvort heldur sem er að frændsemi eður mægðum, veri sekur þrem mörkum í fyrsta sinn og skilji eftir löglega áminning. Kunni þau í annað sinn brotleg að verða eftir sitt hið fyrra bætt brot þá sekist hvort um sig sex mörkum og fari annað hvort úr héraðinu. En ef þau verða fundin í þessu misferli í þriðja sinn gjaldi níu merkur hvert sem svo hefur brotið og fari annað úr fjórðunginum, hvort sem sýslumanni með dandimanna ráði virðist hentugra að fara skuli. En kunni þau að falla í fjórða sinni hvort um sig verði þá sek þrettán merkur við kóngdóm og missi húðina. En ef fyrrskrifaðir menn hafa ekki fé til þá fái refsing eftir markatali af vandarhöggum sem fyrr er sagt. Þær persónur sem brotlegar verða í þriðja og fjórða lið, hvort sem er að frændsemi eður mægðum, þá skulu þau skilja og gjaldi kóngi tólf aura hvort fyrir sig og fyrirbjóða saman að giftast utan með kóngsins leyfi. Verði þau brotleg í annað sinn gjaldi kóngi þrjár merkur hvort um sig. Ef þau brjóta í þriðja sinn í sama misferli gjaldi kóngi sex merkur hvort um sig. Ef þau brjóta í fjórða sinn missi húðina hvortveggja og gjaldi öngvar fésektir.Þær persónur sem löglega eru eigingiftar og kunna í einföldum hórdómi brotleg að verða gjaldi kóngi sex merkur í fyrsta sinn hvort um sig. En ef giftur maður tekur gifta konu eða gift kona giftan mann sekist hvort um sig tólf mörkum. Ef þau falla í annað sinn í sama sakfelli sín á millum eður við aðra, annað hvort í einföldum hórdómi eður tvöföldum, svari slíkum fésektum hálfum auknum hvort um sig og missi húðina. En hvort sem eigi hefur fé til missi húðina og hafi að auki aðra líkamlega refsing sem tólf menn dæma. En ef annað hvort þessara manna kunna brotleg með sama hætti að verða í þriðja sinn, hvort heldur það er í einföldum

