Tíðni kjörsóknar kjósenda 1874–1903
Þessi viðauki inniheldur tvær töflur sem birta tíðni kjörsóknar einstakra kjósenda á tímabilinu. Um er að ræða sömu upplýsingar sem annars vegar eru settar fram sem fjöldi kjósenda innan sama kjördæmis eftir því í hve mörgum atkvæðagreiðslum þeir tóku þátt og hins vegar sömu upplýsingar hlutfallslega (í prósentum). Þeir kjósendur sem voru búsettir og kusu í fleiru en einu kjördæmi á tímabilinu eru taldir til þess kjördæmis þar sem þeir kusu oftast – ef jafnt, þá til þess kjördæmis þar sem þeir kusu fyrst. Vöntun á atkvæðaskrám í Dalasýslu, þar sem aðeins tvær af tíu atkvæðaskrám hafa fundist, gerir upplýsingar þaðan ósambærilegar við önnur kjördæmi. Eina atkvæðaskrá vantar líka úr Borgarfjarðarsýslu. Sömu litamerkingar eru notaðar í prósentutöflunni og notaðar eru í viðauka 7.
