Viðauki 5

Flokksframboð og klofningsatkvæði í tvímenningskjördæmum

Alþingiskosningarnar 1900, 1902 og 1903 voru þær fyrstu þar sem andstæðir stjórnmálaflokkar, Heimastjórnarflokkur og Valtýingar, börðust um hylli kjósenda.  Flokkarnir voru þó ekki formlega stofnaðir fyrr en sumarið 1902. Töflurnar sýna atkvæðaskiptingu milli frambjóðenda og hvaða tvo frambjóðendur í sjö af níu í tvímenningskjördæmum kjósendur völdu saman. Ísafjarðarsýsla og Eyjafjarðarsýsla eru undanskyldar vegna skorts á gögnum og upplýsingar um kosningarnar í Suður-Múlasýslu árið 1903 vantar af sömu ástæðu. Neðan við hverja töflu birtist útreikningur á flokksatkvæðum og klofningsatkvæðum (e. split voting) við hverja kosningu, þ.e. hvaða hlutfall kjósenda sem kaus samherja annars vegar og frambjóðendur úr andstæðum flokkum eða einn flokkaframbjóðanda og annan óháðan hins vegar. Nöfn frambjóðenda Heimastjórnarflokks eru rituð með bláum lit, Valtýinga með grænum og óháðra með svörtum.

Hlaða niður viðauka 5 (PDF)

Hlaða niður viðauka 5 (Excel)