Í Þjóðskjalasafni Íslands eru varðveittir kjörgripir sem hafa hlotið viðurkenningu UNESCO með skráningu á heimsskrá eða landsskrá Íslands um Minni heimsins.
„Árið 1992 setti UNESCO á fót áætlunina Minni heimsins (Memory of the World) með það að meginmarkmiði að hvetja til varðveislu og aðgengis að dýrmætum menningararfi sem geymdur er í skjalasöfnum, kvikmyndasöfnum og bókasöfnum víða um heim. Skrá UNESCO um Minni heimsins (Memory of the World Register) var stofnuð í kjölfarið árið 1995.“
Heimsskrá (International Register) geymir menningararf sem hefur víða skírskotun og mikið alþjóðlegt gildi. Aðalstöðvar UNESCO varðveita þessa skrá.
Árið 2012 var skipuð Landsnefnd Íslands um Minni heimsins í þeim tilgangi að kynna Minni heimsins og efna til Landsskrár Íslands.
Landsskrá Íslands (Iceland‘s National Register) nær yfir menningararf sem er sérstaklega mikilvægur fyrir Ísland. Skráin er varðveitt af Íslensku UNESCO-nefndinni.
- Manntalið 1703 var sett á heimsskrá um Minni heimsins þann 18. Júní 2013
- Íslensk túnakort 1916-1929 voru sett á landsskrá Íslands um Minni heimsins þann 8. mars 2016
- Kvikfjártalið 1703 var sett á landsskrá Íslands um Minni heimsins þann 8. mars 2016
- Reykholtsmáldagi var settur á landsskrá Íslands um Minni heimsins þann 7. maí 2026

