Dulsmál úr Múlasýslu 1724

Uppskrift:

Rögnvaldi Steingrímssyni og Högna Hallssyni - ásamt nærverandi heiðurlegum kennimanni, séra Einari Jónssyni, á þann 30. dag ofanskrifaðs mánaðar framar eftir þessu grennslaðist á heimili Jóns Eyjólfssonar. Meðkenndi þá Jón Eyjólfsson að hann hefði í fyrri frásögninni um greftrunina téðrar barnsmyndar sig forséð, hvar til hann sagðist líkindi nokkur sýnt geta og upptók úr húshorni innan bæjar, í fyrrskrifaðra manna viðurvist, rotinn barnslíkama, þar áður af honum í gólfið niðurgrafinn, er hann þá meðkenndi það sama barn vera, sem hans dóttir Halldóra Jónsdóttir hefði af sér fætt í fyrravetur þá rúmur mánuður var af vetri og Ormur Einarsson væri faðir að eftir konunnar lýsing, hvert barn hann meðkenndi framar aðspurður fullaldra eftir meiningu sinni, hvert hann nú gróf í Dvergasteinskirkjugarði oss viðverandi. Þetta áðurskrifað svo á sig komið sendist virðuglegum sýslumanninum Jens Wium til yfirskoðunar og frekari aðgjörða ef svo sýnist, því vér þykjumst ei framar við svo búið hér út í gjöra kunna. Skrifað á Dvergasteini datum 30. maí, ár sem upphaflega greinir.



 

 

Hér viðstaddur var ég undirskrifaður

Einar Jónsson

Voru þessar persónur Jón Eyjólfsson og Halldóra Jónsdóttir, áðurnefnd Jóns egtafædd dóttir, hér bæði í þinginu, hingað færð til Dvergasteins í gærkvöldi frá þeirra heimili Þórarinsstöðum af velnefndum valdsmanninum Wium