Uppskrift:
hafa þegar hann hefði til sín komið. Framar auglýsti hún eftirspurð af sýslumanninum að faðir sinn, Jón Eyjólfsson, væri faðir að þessu sínu barni en ekki Ormur Einarsson svo sem hún hefði af fávisku sinni og áeggjan föður síns áður tilsagt. Framar auglýsti nefnd Halldóra opinberlega fyrir réttinum að hún hefði til samræðis og saurlifnaðarverks með föður sínum nauðug og í allan máta óviljug verið, og ekki heldur af fáfræði sinni eiginlega vitað þar mundi lífsstraff á vera, og hefði hún svo hvorki vogað að auglýsa þetta framferði föður síns við sig og ei heldur síðan meðhöndlan hans með barnið eður þess fæðing fyrir prestinum né öðrum góðum mönnum sem sér hefðu nálægir verið nú síðan að þetta skeði. Velflestum þingmönnum þykir þessi saga Halldóru trúanleg, sérdeilis þar mönnum virðist af andsvörum og tali þessarar konu fyrir réttinum að hún muni næsta einföld og fáfróð vera, sérdeilis í þeim hlutum sem lagaréttinum viðvíkur og því straffi sem á þessum stórglæp eður öðrum þvílíkum segist. Þykir þingmönnum það og til líkinda hér um að Halldóra missti móður sína níu vetra og hefur síðan í 16 ár verið með öðrum yngri systkinum sínum einmana hjá föður sínum, og enginn maður vandalaus á heimilinu, hefur því sjaldan við gott fólk talað nema hvað vera hefur kunnað einstöku sinnum við kirkju og það eina numið, sem faðir hennar hefur fyrir henni haft og uppfrætt hana í soddan efnum, sem hér auglýsist að sé með öllu ólesandi og hafi því ekki kunnað með

