Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

Árið 1904 réði Stefana sig í vist hjá sóknarprestinum á Ríp, sr. Jóni Ó. Magnússyni og fluttist síðar með fjölskyldu hans vestur að Fróðá á Snæfellsnesi. Næst lá leið hennar til Reykjavíkur, þar lærði hún karlmannafatasaum og rak síðan saumastofu.