Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

Allan sinn starfsaldur dvaldi Stefana í Reykjavík en fluttist norður yfir heiðar til frændfólks síns að Ártúni, A-Húnavatnssýslu 85 ára að aldri, þar bjó hún í rúmlega 5 ár og fluttist á Sauðárkrók og bjó á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki sín síðustu ár. Stefana giftist ekki og eignaðist ekki afkomendur, hún lést á Sauðárkróki á 98. aldursári.

Í minningargrein sem Sigríður Ólafsdóttir skrifaði um frænku sína kemur fram að Stefana var alla jafna hrókur alls fagnaðar og að heimili hennar hafi staðið öllum opið. Að Bergstaðarstræti 4 bjó hún og vann og þar kenndi hún mörgum ungum stúlkum iðn sína. (Morgunblaðið 8. apríl 1983)