Viðauki 11

Konur á kjörskrám til Alþingis 1874–1903

Íslenskar konur fengu fyrst kosningarétt til Alþingis árið 1915. Engu að síður finnast nöfn kvenna á kjörskrám til Alþingis á árabilinu 1874–1903. Alls hafa 158 nöfn kvenna fundist í þeim skrám sem liggja til grundvallar þessum gagnagrunni. Hér birtist listi með nöfnum þessara kvenna, ásamt upplýsingum um búsetu þeirra, stöðu og aldur og þau ár sem nöfn þeirra voru á kjörskrá. Nöfn tólf kvenna koma fyrir á tveimur kjörskrám, eitt á þremur og eitt á fjórum og eru nöfn þeirra feitletruð í listanum. Konurnar sem fengu nöfn sín skráð á kjörskrár voru því alls 141. Með listanum fylgir tafla sem sýnir dreifingu kvennanna eftir kjördæmum og almennum alþingiskosningum. Skráningar á kjörskrá fyrir aukakosningar (alls 23 tilvik) eru í töflunni taldar með næstu aðliggjandi almennu kosningum.

Hlaða niður viðauka 11 (PDF)

Hlaða niður viðauka 11 (Excel)