Frambjóðendur til Alþingis 1874–1903
Hér birtist listi yfir alla sem fengu atkvæði í alþingiskosningum á tímabilinu. Listanum er raðað á þrjá vegu: eftir kjördæmum; í stafrófsröð; og eftir stöðu (starfsheiti). Upplýsingarnar eru þær sömu í öllum gerðum en röðunin mismunandi. Alls fékk 301 framboð atkvæði. 60 þessara framboða voru frá einstaklingum sem buðu sig fram í fleiru en einu kjördæmi og voru þeir sem fengu atkvæði því alls 241. Af þeim fengu 46 einungis atkvæði við kosningarnar 1874. Fyrir breytingu á kosningalögum 1877 voru allir kjörgengir innan amts sjálfkrafa í framboði en frá 1877 þurftu einstaklingar að lýsa framboðum. Þeir sem það gerðu voru alls 195.
