Hlutverk sýslumanna fyrr á tíð var afar víðtækt. Þeir sáu m.a. um skattlagningu, skráningu eigna, mat á fasteignum, uppgjör dánarbúa og síðast en ekki síst voru þeir lögreglustjórar og dómarar. Skjalasöfn sýslumannsembættanna innihalda afar mikilvægar upplýsingar um líf og starf borgaranna. Hér eru birtar upplýsingar úr dómabókum og skiptabókum. Ekki eru birt gögn sem eru yngri en 80 ára í samræmi við lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.
Nánari upplýsingar
Dóma- og þingbækur
Gögn dómsstóla eru með mikilvægustu sögulegu heimildum sem völ er á. Oft má þar finna upplýsingar um einstaklinga og örlög þeirra. Skoða myndir af frumritum dómabóka.
Skoða dómabækur
Dóma- og sáttabókagrunnur
Á undanförnum árum hefur verið unnið að gerð gagnagrunns, sem tekur til dómabóka sýslumanna. Dómabókagrunnurinn er þegar orðinn öflugt leitar- og skráningarverkfæri, sem hefur nýst við margvíslegar rannsóknir. Nú (2018) er hægt að leita í grunninum í dómabókum frá 11 sýslum, allt frá Barðastrandasýslu og norður um að Þingeyjarsýslu.
Skoða dómabókagrunn
Dánarskrár og legorðsskýrslur
Árlega sendu prestar sýslumönnum upplýsingar um hverjir höfðu dáið í hverri sókn. Þar sem prestþjónustubækur hafa glatast geta þessar heimildir verið mikilvægar. Jafnframt var safnað upplýsingum um þá sem höfðu orðið uppvísir að legorðsbroti. Það er þá sem höfðu eignast barn utan hjónabands. Sektargreiðslur vegna slíks athæfis runnu í konungssjóð. Hafin er vinna við að skanna gögn úr sýslumannsembættunum er varða þessi mál. Nú (2018) eru gögn úr Múlasýslu aðgengileg en á næstu misserum munu bætast við gögn úr öðrum sýslum landsins. Skoða dánarskrár og legorðsskýrslur.
Skoða dánarskrár og legorðsskýrslur
Skiptabækur
Í skiptabækur eru færðar upplýsingar um dánarbú einstaklinga. Skiptabækurnar eru hluti af skjalasöfnum sýslumanna. Nú (2018) hafa verið myndaðar skiptabækur frá Barðastrandarsýslu, Norður-Ísafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu og á næstu misserum munu birtast bækur frá öðrum sýslum. Í skiptabókum má fræðast nákvæmlega um eignir einstaklinga, þegar þeir létust. Elstu skiptabækurnar eru frá því um 1770 og yngstu gögnin eru frá árinu 1922. Skoða skiptabækur
Dánarbú, gagnagrunnur
Gagnagrunnurinn tekur til dánarbúsuppskrifta, skiptabóka og uppboða sem til eru frá 18. og 19. öld og varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands. Nokkuð er líka um gögn sem varða eigur lifandi fólks, svo sem vegna hjónaskilnaða og gjaldþrota. Dánarbúin eru þungamiðja verkefnisins. Þau innihalda nákvæmar skrár yfir eftirlátnar eigur fólks og taka til fatnaðar, sængurfata, mataríláta, verkfæra og búfjár, með fleiru. Þetta eru ómetanlegar upplýsingar um afkomu fólks og lífskjör í landinu. Skrárnar eru gerðar vegna opinberra skipta á arfi sem áttu að fara fram væru erfingjar annaðhvort á barnsaldri eða búsettir í öðrum landshlutum.
Skoða gagnagrunn um dánarbú





