
Október 2026
Þann 15. október 1918 lagði botnvörpuskipið Njörður af stað frá Reykjavík með 11 manna áhöfn, einn farþega og fullan farm af fiski ásamt pósti og var förinni heitið til Fleetwood á Englandi. Njörður var stálskip, smíðað í Selby á Englandi árið 1912. Fyrstu tvö árin var það gert út frá Fleetwood en í byrjun árs 1914 var það selt Fiskveiðifélaginu Nirði í Reykjavík og fékk nafnið Njörður RE 36.
Í útdrætti úr leiðarbók skipsins, sem varðveitt er meðal skjala frá Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn á Þjóðskjalasafni Íslands, eru ferðir skipsins nákvæmlega skráðar. Á siglingunni frá Íslandi varð vart við öskufall frá Kötlu, svo mikið að Vestmannaeyjar sáust ekki þegar Njörður sigldi frá Reykjanesi. Gos hafði hafist í Kötlu þann 12. október og stóð til 4. nóvember, og var meðal stærstu Kötlugosa frá því að land byggðist. Gjóskufall var mikið, sérstaklega fyrstu dagana, og öskufall umtalsvert eins og skipverjar urðu varir við.
Að morgni 18. október, um klukkan tíu, sáu skipverjar eitthvað á haffletinum sem líktist ferstrendum kassa, um fjórar sjómílur frá Nirði. Þegar betur var að gáð reyndist þetta vera kafbátur. Skipstjórinn, Guðmundur Guðnason, gaf þegar skipun um að auka ferð skipsins eins og kostur var og breyta stefnu í von um að komast undan. Klukkan 10.55, þegar Njörður var staddur um 25 sjómílur suðvestur af skosku eyjunni St. Kilda, hleypti kafbáturinn af fyrsta skotinu. Skipstjórinn ákvað þá að stöðva Njörð og setja út björgunarbát. Í leiðarbókinni er atburðunum lýst svo:
„Þegar stoppuð var maskinan var hann búinn að skjóta 3 skot, var þá settur út bátur, gekk altaf skothríðin á meðan fór jeg þá (skipstj.) svo upp í stýrishús og náði skipspappírunum og dagbók og korti og síðan aptur á skip og losaði bátinn úr súrringum sem við álitum að ekki væri eigandi við að setja út fyrir skothríð, var svo farið frá bátnum aptur fyrir „Njörð“ og gekk altaf skothríðin á meðan og virtust sár fá skotin hitta til skemda, þar til formastrið fór úr, hætti hann þá að skjóta í klukkutíma, fór fyrir aptan skipið niður til hljes og fyrir framan það upp til kuls og þvers af því og byrjar þaðan að skjóta aptur kl. 2 ½ emd. sökk skipið og var hann þá búinn að skjóta 40 til 50 skotum, eptir ágiskan …“
Njörður sökk klukkan 14.30, um þremur og hálfri klukkustund eftir að kafbáturinn hóf skothríðina. Skipverjar fylgdust með úr björgunarbáti. Kafbáturinn hvarf síðan í vesturátt án þess að nálgast þá eða sýna þjóðerni sitt.
Hvass austanvindur var og mikill sjór. Skipverjar fundu hinn björgunarbát Njarðar á floti skammt frá og þar sem hann var óskemmdur skiptu þeir sér á bátana, sex manns í hvorn. Þeir reru og sigldu síðan eftir föngum suður á bóginn í átt að Skotlandi. Um klukkan 23.30 hinn 20. október tók breski varðbáturinn Lord Lister skipverjana úr báðum bátunum um borð. Þeir voru þá um 20 sjómílur frá írsku eyjunni Inishtrahull og höfðu verið á björgunarbátunum í tæpar 60 klukkustundir. Í leiðarbókinni segir að mannskapurinn hafi verið „þreyttur, sifjaður og blautur“. Allir tólf skipverjarnir björguðust.
Mánudagsmorguninn 21. október komu skipbrotsmennirnir til Londonderry (Derry) á Írlandi. Móttökurnar voru, að sögn skipstjórans, afar góðar: „og hefði maður hvergi getað hugsað sjer aðrar eins viðtökur, virtist manni fólkið bera mann á höndum sjer“. Síðdegis sama dag lagði öll áhöfnin af stað til Fleetwood og kom þangað daginn eftir. Hinn 24. október héldu skipverjarnir til Liverpool, þar sem þeir gáfu skýrslu á skrifstofu danska ræðismannsins og sjópróf var haldið. Skipverjar komust svo til Íslands með næstu skipum sem þangað sigldu frá Englandi.
Síðar kom í ljós að það var þýski kafbáturinn U-122 sem sökkti Nirði, og var Njörður eina skipið sem kafbáturinn sökkti í fyrri heimsstyrjöldinni. Vopnahlé tók gildi 11. nóvember 1918, rúmum þremur vikum eftir árásina. Örlög kafbátsins U-122 voru þau að báturinn var tekinn yfir af bandamönnum í lok nóvember 1918 og svo sökkt á Ermasundi 1. júlí 1921.
Höfundur: Njörður Sigurðsson
Heimildir:
ÞÍ. Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn 0/2. BA/26, örk 18
Dagsbrún 2. nóvember 1918, bls. 104.
Vef. „Hvað getur þú sagt mér um Kötlugosið 1918?“ visindavefur.is. Sótt 29. september 2026.
Vef. Uboat.net. „Ships hit during WWI. Ship losses by Month. October 1918,“ uboat.net. Sótt 29. september 2026.