Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

Einkaskjalasafn hennar er dæmigert safn sem berst Þjóðskjalasafni Íslands. Það var afhent í annars vegar gamalli ferðatösku og hins vegar skærgulum bónuspoka. Í töskunni voru nokkrir plastpokar sem voru fullir af sendibréfum, jólakortum, ljósmyndum, filmum, sálmaskrám og blaðaúrklippum, svo fátt eitt sé nefnt. Þar var líka að finna, tvo konfektkassa og vindlakassa auk tveggja útsaumaðra taskna sem allt innihélt samskonar gögn.